Sláturhúsið / mmf

Opnunartími

Sumar:
Þriðjudagar - föstudagar: 11 - 16
Laugardagar: 13 - 16
Lokað á sunnudögum og mánudögum

Vetur:
Mánudagar - föstudagar: 11 - 16
Lokað um helgar

Um mmf // About mmf

Hlutverk Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs (MMF) er að efla lista- og menningarstarf á Austurlandi. Miðstöðin leggur áherslu á sviðslistir (e. performing arts) sem byggja á flutningi verka þar sem mannslíkaminn og röddin eru helstu verkfæri tjáningar. Vegna þessa leitast hún við að leggja sviðslistir til grundvallar þeim áhersluverkefnum sem unnin eru. Sú stefna útilokar þó ekki aðkomu miðstöðvarinnar að öðrum list- og menningarformum. Önnur og ekki síður mikilvæg áhersla er lögð á lista- og menningaruppeldi barna og ungmenna. Lögð er áhersla á að sem flest verkefni hafi fræðslugildi samhliða listrænum gildum. MMF tekur árlega þátt í BRASi ,menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, ásamt öðrum menningarmiðstöðvum á Austurlandi. 

MMF var stofnuð árið 2005 og er ein þriggja menningarmiðstöðva á Austurlandi samkvæmt samningi ríkisins og sveitarfélaganna á Austurlandi um menningarmál. Menningarmiðstöðin er lykilstofnun við framkvæmd menningarstefnu sveitarfélagsins.

MMF er til húsa í Sláturhúsinu við Kaupvang á Egilsstöðum.

Forstöðumaður er Ragnhildur Ásvaldsdóttir

 

The Center for Art and Culture in Fljotsdalsherad (MMF) is located in Slaturhusid, Egilsstadir. As a Center for Performing Arts we are  inspired every day to create, share, teach, excite and perform for our community. Although performing arts are our main focus we also host art exhibitions.

Director of MMF is Ragnhildur Asvaldsdottir

Starfsfólk // Staff

Ragnhildur Ásvaldsdóttir

Forstöðumaður

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

s: 767 3323

 

Perla Sigurðardóttir

Kynningarfulltrúi

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

s: 863 4481

 

Fagráð // Professional council

  • Í fagráði Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs sitja ásamt forstöðumanni:
     
    Lasse Høgenhof, skólastjóri LungA skólans
    Ásgeir Þórhallsson, formaður Leikfélags Fljótsdalshéraðs , 
    Alexander Graham Roberts, fagstjóri meistaranáms í sviðslistum LHÍ
    Unnar Geir Unnarsson, leikstjóri
    Árni Ólason, skólastjóri Menntaskólans á Egilsstöðum
     
    Fagráð er valið til 2 ára í senn

Sláturhúsið // Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs

Kaupvangi 9, 700 Egilsstaðir // This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. // s: 897 9479
Opnunartími / sumar: Þri-fös: 11-16, lau-sun: 13-16 // Opening hours (summer): Thu-Fri: 11 am - 4 pm, Sat-Sun: 1 pm - 4 pm